Home Portfolio Blog Service About us contact us

Skemmtilega ísland

themistymanv.jpg

Jæja þá er loksinns allt að ské. Er að klára að laga nýja útlitið, uppfæra portfolioið og almennar lagfæringar. Maður er búinn að reyna að vera að koma sér á framfæri í listaheiminum en þegar allt virtist vera að blessast þá hrinur þessi yndælis króna okkar niður úr öllu valdi. Auðvitað er ekki allt eins hrikalegt og fjölmiðlar lýsa en fólk verður að passa sig í að missa sig ekki algjörlega og hræða aðra. Þetta er bara ein að þessum tilraunum sem Ísland er að ganga í gegn um. Við þurfum bara að halda aftur af þessari hræðilegu eyðslufíkn sem virðist hrjá okkur Íslendinga.

En að öðru…

Ég er búinn að senda nokkra boli í net keppni sem heitir Design by humans. Þetta er alþjóðleg keppni um stuttermabola hönnu. Til þess að vinna þá þarf ég að fá sem flest atkvæði og comment. Það vinnur einn bolur á hveerjum degi 750$ og að sá bolur fari í prent og sölu. Draumurinn er að sjálfsögðu að vinna og þess vegna þarf ég ykkar hjálp við að kjósa.

Ég mun verða duglegri að blogga í framtíðinni þó svo að þessi færsla verði ekki lengri en komið er.

Leave a commment